|
|
21.12.2006 10:56:16 / flatey
Jæja þá hefur ættin eignast doktor,,,,,,, Elvar Halldór
varði doktorritgerð sína 14. desember við háskólann í Tromsö.
Rannsóknin fjallaði um afföll af loðnuseiðum (Mallotus
villosus) í Barentshafi af völdum afráns og áhrif þess á nýliðun
loðnustofnsins. Allt var þetta gefið út á bók sem í okkar
tilviki er auðvitað jólabókin í ár. Áhugasamir geta litið við
hjá sigga h og gluggað í ritverkið.
»
15.07.2006 15:09:36 / flatey
Nú er liðin vika síðan við hittumst og ég er mjög ánægð með hvað
allt gekk vel, við vorum heppin með veður, ekki hefði það verið
betra núna.
Ég er svoddan klaufi að setja myndir inn, en ef þið farið inn á
barnalandssíðuna hjá Gunnari Jökli www.barnaland.is/barn/18085
þá sjáið þið fullt af myndum.
Takk fyrir allt, höldum áfram að vera í sambandi á síðunni.
Kveðja Olga Dís
»
10.07.2006 21:04:09 / flatey
Kærar þakkir fyrir fína og vel skipulagða helgi af
mótshöldururum. Allt gekk þetta fínt og flott fyrir sig og ég held
bara að allir hafi farið ánægðir heim, þó borið hafi á reykeitrun
hjá sumum.
Vildi bara deila með ykkur nettum "celebum" sem ég sá á rölti í
Flatey þessa ágætu ættarmótshelgi! Það voru engir aðrir en Clint
Eastwood og svo Sean Connery sjálfur!!


Bestu
kveðjur,, Bjössi og co!
»
06.07.2006 09:30:32 / flatey
»
05.07.2006 16:55:23 / flatey
Jæja góðir ættingar!
Þá er að koma að þessu, ég er að fara í Flatey í fyrramálið og
get því ekki komist á síðuna fyrr en eftir ættarmót.
Þeir sem ekki ná að greiða fyrir helgi, geta komið með greiðslu
til mín í Flatey. (það er ekki tekið á móti greiðslukortum).
Það verður gaman að taka á móti ykkur öllum. Sjáumst hress
og komið með góða skapið, söngröddina og góða veðrið með ykkur.
Kveðja Olga Dís.
»
04.07.2006 16:42:20 / flatey
Haaaalllóóóóóó!!!!!! hvar eru allir skemmtikraftar
fjölskyldunnar sem ætla að troða upp í tjaldinu? Það
hefur ennþá enginn gefið sig fram nema Sóla með skyggnilýsingarnar
hennar Ernu (þær segja að Bjössi sé svo mikill draugur að það sé á
við skyggnilýsingar að segja frægðarsögur af kappanum)
allt kemur til greina sem er hæfilega vel innan
siðgæðismarka.
kveðja siggi h.
»
04.07.2006 16:30:17 / flatey
Almennt fargjald með Baldri, Stykkishólmur-Flatey, er kr. 1530,-
aðra leiðina fyrir fullorðna, helmingi minna fyrir börn, svo með
afslættinum greiða fullorðnir kr. 1836,- fyrir leiðina
Sth-Bræðraminni-Sth.
Munið svo að leggja inn 2000 kallinn fyrir helgi.
Til hamingju með daginn 3. júlí Sigga og Sólkatla

Nefndin.
»
03.07.2006 19:47:16 / flatey
Vinsamlegast greiðið 2.000.- kr. pr. mann 15 ára og eldri, inn á
reikning 0321-13-700032 kt. 140260-7899
Með kveðju frá gjaldkera.
»
03.07.2006 19:43:49 / flatey
Laugardagur 8.
júlí
2006
11.15
Gengið í
skrúðgöngu frá Bræðraminni til kirkju með trommur og íslenska fánann í
fararbroddi.
11.30
Helgistund í
Flateyjarkirkju.
14.0
Leikir og
ýmsar uppákomur á reitnum niður við Vog.
16.0 Kveikt í grillinu og
sameiginlegt borðhald undirbúið.
17.0 Myndataka hjá Bræðraminni,
hver litur myndaður fyrir
framan ættaróðalið. (
Enginn má skorast undan.)
17.00 Meðan beðið er eftir matnum er hægt
að spila Marías og Sæl ömmu inn í
tjaldi.
18.0 Borðhald í og við
tjaldið.
20.0 Kvöldvaka með tónlist,
frásögnum og ýmsum
uppákomum.
Þeir sem eru með eitthvað
fram að færa, hafið
samband við veislustjórann, Sigþór U. Hallfreðsson.
»
03.07.2006 15:21:42 / flatey
Mér telst til að afkomendur þeirra ömmu og afa í beinan legg séu
orðnir 124 og hefur því fjölgað um hvorki meira né minna en 42 á 10
árum, séu þetta réttar tölur. Prófið að telja og gáið hvort þið
fáið það sama út !
Svo ef þið viljið komast í ennþá meiri Flateyjarstemningarfíling
þá kíkið inn á síðuna hennar Sólu, linkur hér til hliðar 
Kv. Ellý
»
30.06.2006 19:11:16 / flatey
Ég held ég setji hér inn nokkur
orð, það er svo leiðinlegt að kíkja inn og ... ekkert nýtt
!
En nefndin er sífellt að störfum og
hefur skipt farsællega með sér störfum eins og góðra nefnda er
tamt, auk þess að hafa komið einstökum verkefnum yfir á aðra þegar
betur hefur þótt henta.
Minningarstundin í kirkjunni er nú
óðum að mótast en Hólmarinn Sr. Elínborg Sturludóttir sóknarprestur
í Grundarfirði mun vera með okkur í þeirri stund. Að öðru leyti
munum við sjálf sjá um allan flutning. Þorkell Máni mun sjá um
orgelleikinn og Bræðraminniskórinn mun leiða sálmasönginn.
Minningarorð verða flutt og eru þau systkin Bents og Þorvarðarbörn
þessa dagana að skrá niður eitthvað fróðlegt og skemmtilegt fyrir
okkur hin að hlýða á. Fjölbreyttur tónlistarflutningur mun verða.
Elín Hanna mun leika eitt lag á fiðlu, einsöngur verður í höndum
Örnu Láru, Huldu Gests og Höllu Dísar, auk þess sem Björgvin og
Lárus Frans munu syngja tvísöngslag. Ellý og Sigrún Hrönn munu
stýra kirkjuskólalögum með yngri kynslóðinni (og örðum síungum !!)
og fleira og fleira. Það er ljóst að þessi stund á eftir að verða
okkur mikils virði í minningarbók framtíðarinnar og frábær byrjun á
frábæru ættarmóti.
Við munum koma okkur vel fyrir í
eynni. Þannig munu þau systkin Sóla og Bjössi auk systranna Hrefnu,
Eyrúnar og Lillu koma sér vel fyrir á Vogi. Björgvin verður með sitt
lið á Bergi, Hjördísar
lið m.a. á Sunnuhvoli
og gömlu símstöðinni,
Gréta í Vertshúsi,
Sigrún Hrönn í Rarikbústaðnum, Olga og co. í
Grænagarði, Hilmar og
co. á Bjargi og ekki má
gleyma sjálfu ættaróðalinu, Bræðraminni, sem verður að
sjálfsögðu miðdepill mótsins, en þar verður stórt samkomutjald
staðsett.
Ennþá á eftir að uppfæra
afkomendaskrá þeirra Óla Geirs og Huldu. Ég vænti þess að
einhverjir innan þeirra afleggjara sjái sér fært að skrá það inn á
,,um okkur” ekki síðar en um helgina, til þess að hægt verði að sjá
hvað við erum nú orðin mörg !! Við vorum 82 árið 1996.
Frábær skemmtun framundan
!
Bestu kveðjur, hlakka til að sjá
ykkur, Ellý
»
20.06.2006 18:46:37 / flatey
Nefndin hefur samið um 40% afslátt með Baldri sem gildir í
kringum ættarmótshelgina. Kaupa þarf miða á skrifstofu Sæferða áður
en lagt er í 'ann og gera þarf grein fyrir sér til þess að fá
afsláttinn, þeir sem ekki þekkjast þar af ættarsvipnum notast við
ákveðna kennitölu, sem ekki er rétt að tíunda frekar hér
á galopnum vettvangi, en tengiliðir hverrar greinar
ættartrésins hafa fengið upplýsingar um það.
,,Bráðum Baldur nú fer Breiðafjörðinn minn yfir, í skyndingu
skelli ég mér .... " Það fer að styttast í þetta 
»
19.06.2006 21:41:20 / flatey
Nú hefur undirbúningsnefnd fundað aftur, og skipulagning gengur
vel. Síðasta talning er 142 og er það framar öllum
vonum.
Ákveðið hefur verið að mótsgjald verði 2.000.- á mann fyrir 15
ára og eldri, frítt fyrir börn. Innifalið er matur á
laugardagskvöldi ásamt öðrum kostnaði s.s. tjald, bekkir, borð,
borðbúnaður, merkisspjöld ofl.
Innleggsreikningur er 0321-13-700032 kt.
140260-7899 það þyrfti að vera búið að leggja inn fyrir 7.
júlí.
Kv. Nefndin
»
14.06.2006 22:07:01 / flatey
Í kaflanum ,,um okkur" væri gaman að setja inn uppfærða
skrá yfir alla afkomendur afa og ömmu, og sjá hvað þeir eru nú
orðnir margir. Við vorum 82 fyrir 10 árum ! Ég er búin að
uppfæra pabba hluta frá því síðast (afkomendaskrá var fremst í
söngheftinu frá síðasta ættarmóti 1996) og setja hann þarna
inn og gott væri ef einhver tæki sig til innan hvers geira og gerði
slíkt hið sama.
Ég minni aftur á það að panta fyrir tjaldvagna og annað sem
flytja á með Baldri tímanlega, því það gæti orðið mikill flutningur
þessa helgi, heyrst hefur um annað ættarmót í eynni.
Bestu kveðjur, Ellý
»
14.06.2006 20:56:44 / flatey
Það ætlar að verða frábær mæting á ættarmótið okkar, nú hafa 129
skráð sig Þeir sem ekki eru komnir á blað, en ætla að vera
með, drífið ykkur í því að skrá ykkur
!
»
Síður: 1 2
|
|